
Government Efling condemns war of aggression by the United States and Israel against Iran
Star Efling takes fully under
the resolution of the Icelandic People's Alliance about illegal war of the United States and Israel against Iran, see here:
Á fyrstu klukkustundum hinna ólögmætu árása höfðu Bandaríkin sprengt íranskan barnaskóla og myrt þar hátt í tvö hundruð stúlkur og kennara þeirra. Allt bendir til þess að þar hafi um viljaverk verið að ræða en slíkt er gróft brot á alþjóðalögum og sáttmálum. Við tökum undir kröfur um að glæpurinn verði rannsakaður og þeir seku látnir svara til saka fyrir stríðsglæpadómstól.
Árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran er brot gegn fullveldi landsins og óumdeilanlegum rétti Írana til að ráða eigin örlögum. Árásin er án tilefnis, er glæpur gegn friði og stríðsglæpur, og brýtur þar með gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þannig er um grófa aðför að öllu alþjóðaréttarkerfinu, sem komið var á í kjölfar stríðsglæpa þeirra sem framdir voru í Seinni heimsstyrjöldinni, að ræða, aðför sem siðmenntuðum þjóðum ber skylda að standa gegn.
Stjórn Efling krefst þess að íslensk stjórnvöld fordæmi stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Ekki gengur að ríkisstjórn Íslands leggi ekki sitt af mörkum í baráttunni fyrir friðsamlegu samskiptum á milli þjóða heimsins.




